Elínborg Ósk

Velkomin á síðuna mína

22.01.2008 20:48:35 / Elínborg

nýtt ár

Jæja ætli það sé ekki best að skrifa helstu fréttirnar fyrir dömuna þar sem nýtt ár er komið og hellingur búinn að gerast hjá henni á þessum fáu dögum sem liðnir eru.

Nú skólinn byrjaði náttúrulega 3 janúar og búið að vera nóg að gera þar.

Hún er á fullu í fótboltanum og um síðustu helgi var mót á Skaganum. Skallagrímur fór með 2 lið og kepptu bæði liðin 2 leiki. Og eru stelpurnar okkar orðnar svo góðar að þær unnu alla leikina, algjörir snillar. Eftir leikina var svo farið með allar skvísurnar á Subway og borðað saman þar og svo haldið heim í nesið.

Ekki má gleyma því að nú í byrjun janúar uppgötvaðist að læðan okkar hún Tinna er ekki læða, heldur högni. Og er búið að gera mikið grín af því.

Svo er daman búin að vera veik, með einhverja magaveiru, voða aum og er búin að vera með hita í rúma viku, en hún virðist samt vera að hressast.

en nóg í bili


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 11:26:25 / Elínborg

ljóðið mitt

 mamma og pabbi

mamma er alveg  einsog   amma,pabbi er alveg eins og afi, mamma og pabbi mín en ekki þín                                     


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 16:17:34 / Elínborg

Nammidagur

Þá er kominn nammidagur.

Ég byrjaði á því að fara á fótboltaæfingu í morgun, það var furðufataæfing hjá okkur í dag, ég var í náttfötum af Hafdísi. Mamma og Ásdís komu svo og horfðu smá á okkur. Eftir æfinguna fórum við svo að renna okkur undir Hafnafjalli og það var rosa fjör. Núna er Elín Rut hjá mér og við erum úti að renna okkur.

þangað til næst

kv Elínborg Ósk


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 22:31:48 / Elínborg

Ritarinn búinn að vera í fríi

Jæja þá er ritarinn minn búinn í frí í bili.

Það er margt búið að gerast síðan síðast. En það allra nýjasta er að við vorum fyrir norðan um síðustu helgi og það var rosa gaman. Fórum á fimmtudegi og svo aftur heim á sunnudegi. Afi og amma eru alveg á fullu að gera húsið tilbúið, það verður rosa fínt. Mamma ætlaði að fara að hjálpa afa að mála en það var ekki alveg tilbúið til þess ennþá, hún málar bara næst. Á leiðinni heim vorum við svo samferða afa Nonna og ömmu Bryndísi og Kristínu og Tryggva, en þau voru að fara á móti Berg að sækja Söndru, Ingu og Axel. Sem betur fer því að mamma og bíllinn hennar eru ekki bestu vinir í hálku.

Í gær kom litla systir mín í heimsókn í skólann, hún kemur næst í mars og svo í vorskólann í maí, hún þykist vera voða stór.

en þangað til næst

bless bless


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 21:46:06 / Elínborg

Nammidagur

Nammidagur vei

Mamma gaf okkur Hafdísi pening og við fengum að labba í Hyrnuna og kaupa okkur nammi, og svo fórum við í heimsókn til ömmu Bryndísar og vorum þar þangað til að pabbi kom og náði í okkur.

Og núna eigum við að vera að taka til inni hjá okkur á meðan mamma er að skrifa fyrir okkur inná síðurnar okkar, en henni heyris við bara vera með læti, það getur ekki verið:lol::D

jæja bæó


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 12:48:40 / Elínborg

veik

Halló

ég er veik heima og mamma er hjá mér. Hún er búin að vera að dekra við mig, mér er svo illt í maganum þannig að hún liggur hjá mér og horfir með mér á videó. 'Eg fékk smá popp og kók áðan þegar ég var búin að borða góðan morgunmat:lol:

Mamma fer að vinna eftir hádegi og þá kemur pabbi og verður hjá mér.

Í gær fór ég með pabba og systrum mínum á körfuboltaleik og það var svaka stuð:lol::lol: Skallagímur var að keppa við Njarðvík og vann ekki en það gengur bara betur næst:lol:

En nú ætlum við mamma að fara og fá okkur eitthvað gott að borða.

bæó spæó


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 14:39:41 / Elínborg

jæja kominn tími til

Jæja

þá er hún mamma loks sest niður og farin að skrifa fyrir mig hér:lol: en aðal ástæðan fyrir því er að talvan hennar er eitthvað að stríða henni og hún getur ekki skrifað inná barnalandssíðurnar okkar:(

En þar sem það er orðið mjög langt síðan að nokkuð hefur verið skrifað hér þá er best að skrifa allavega það allra nýjasta.

Mamma fór norður um síðustu helgi til að vera hjá Guðrúnu frænku því að hún lenti í smá slysi en slasaðist voða lítið og hvað haldið þið að hún mamma hafi komið með til baka handa okkur frá ömmu Nönnu??   Hún amma sendi okkur BRATZ dúkkur og nú leikum við okkur bara í bratz.

Og svo í gær vorum við að taka til og tókum frá fullt af dóti og settum niður í geymslu, þannig nú er rosa fínt inni hjá okkur Ásdísi, allavega ennþá:)

Núna eru Karen, Erika og Friðný í heimsókn hjá okkur og við erum auðvitað bara að leika okkur í Bratz:)

en þetta verður bara að vera nóg í bili

kv Elínborg Ósk

p.s er búin að missa 5 tönnina:lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 09:27:58 / Elínborg

Góðan dag

Hæ hæ ég er nývöknuð og þið getið ekki ímindað ykkur hvað er leiðinlegt þegar eldri systir ykkar tekur tölvuna af ykkur þanig gerist hjá mér en ég þarf að dríva mig og gera annað þanig bæ bæ:$

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 21:26:31 / Elínborg

Vitiði hvað ég get??

Ég er farin að hjóla með engin hjálparadekk, mamma er búin að taka þau af hjólinu mínu og nú er ég farin að hjóla alveg á fullu. Er alla daga úti að hjóla og hjóla, fer að hjóla áður en ég fer á leikjanámsskeiðið og svo strax og ég kem heim.

Það er síðasti dagurinn á leikjanámsskeiðinu á morgun og það verður óvissuferð.

Við erum kannski að fara norður í næstu viku, mamma er að fara að hjálpa afa í húsinu sem þau eru að byggja.

Hafdís er að fara í sveitina á mánudaginn.

Ekkert meir að segja, nema þangað til næst


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 19:42:33 / Elínborg

Er á leikjanámsskeiði

Hæ hæ

ég er byrjuð á leikjanámsskeiði og það er rosa gaman.

Ég og Ásdís Eva erum fluttar saman í herbergi. Mamma setti kojurnar saman, ég sef uppi.:lol::$;)

þar til næst bæ bæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 23:02:04 / Elínborg

Komin í sumarfrí

Jæja þá er ég komin í sumarfrí.

Um síðustu helgi vorum við fyrir norðan. Guðrún frænka var að útskrifast sem stúdent og mamma fór að hjálpa ömmu að baka og svoleiðis. Það var rosa gaman þar.

Á mánudaginn var leikjadagur í skólanum og við fengum að koma með sparinesti (mamma gleymdi að við mættum það þannig að hún varð að fara og kaupa svala handa okkur og svo varð hún að hlaupa niðrí Skalló með svalann til mín)

Í gær fórum við svo í vorferð (1 bekkur) fórum á Hvanneyri og skoðuðum búið þar, borðuðum nestið á Indriðastöðum og fórum svo á sveitabæinn hennar Fjólu kennara að skoða kindurnar. Við fengum líka að fara með sparinesti.

Í dag fórum við í fjöruferð og mamma keypti nýja fötu og skóflu fyrir mig.

Bæó spæó


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 20:17:48 / Elínborg

Blessaðann og góðann daginn

ég er á hólum :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 11:02:27 / Elínborg

Datt

Hæ hæ Ég fór á hestbak í gær og það var rosa gaman, við mamma fórum bara tvær. Ég var á Blesa og mamma á Tífu. Reiðtúrinn endaði samt á því að ég datt, ég meiddi mig ekki mikið, hló bara þegar ég stóð upp. Blesi labbaði svo bara á undan okkur og mamma teymdi mig á Tífu. svo fóru pabbi og Hafdís í reiðtúr og á meðan nuddaði mamma mig. kv Elínborg Ósk

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 09:59:23 / Elínborg

Fór á hestbak

Ég fór á hestbak i gær, sagði við mömmu að það þyrfti ekki að halda í mig vi að eg er byrjuð i skóla og ég gat það alveg. Blesi er aftur orðinn haltur, þannig að hann fær bara aftur fri.

Mamma tok fullt af myndum og við skemmtum okkur öll rosa vel, ég með mömmu og pabba, Ásdís hjá Ingu ömmu og Hafdis enn í jeppaferð með ömmu Bryndisi og afa Nonna

kv Elínborg Ósk hestastelpa:lol: 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 10:23:30 / Elínborg

Páskafrí

Það er komið páskafrí.

Amma Nanna og afi Kristján komu í heimsókn og gáfu okkur PÁSKAEGG:D

Hafdís er farin í jeppaferð með ömmu Bryndísi og afa Nonna og Ásdís sefur í rúminu hennar á meðan.

Það var idol-party hjá okkur í gær og amma Inga, Valur Snær, Kristín og Tryggvi komu og Snorri vann, ég hélt líka með honum;)

Við erum búin að sækja Blesa og Krúsa þannig að nú getum við mamma farið á hestbak saman því að þeir eru hestarnir okkar:D

Jæja nú erum við að fara í hesthúsið

bæbæ


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2